Úff hvað tíminn er fljótur að líða!
Síðasti dagur febrúarmánaðar er runninn upp... tíminn er hrikalega fljótur að líða hérna í Danaveldinu. Ég efast reyndar ekkert um að hann sé það líka á Íslandinu góða. Við skötuhjúin erum sem sagt búin að búa hérna í 6 vikur í dag og mér finnst eiginlega eins að við höfum komið í síðustu viku bara! Ég er samt ekkert að væla yfir þessu neitt... þetta þýðir bara að það er styttra þangað til sumarfríið kemur og við getum farið heim á klakann og hitt alla aftur! :)
Mars hefur alltaf verið uppáhalds mánuðurinn minn.. fyrir utan desember kannski. Mars verður sko ekkert síðri þetta árið heldur en hin því það er margt skemmtilegt að fara að gerast í næsta mánuði. Við fáum t.d. 2 heimsóknir, Aníta kemur 5. mars og stoppar í 6 daga og svo koma Thelma og Ívar 15. mars og verða jafn lengi! Þegar þau fara eru páskarnir rétt handan við hornið með páskaeggjum og huggulegheitum og síðan kemur afmælið mitt strax eftir páska!! Ég efast ekkert um að mars verði rosalega fljótur að líða þetta árið!! Annars eiga 2 sætar frænkur afmæli á morgun, 1.mars... til hamingju með daginn á morgun Inga Heiða og Rut :)
Annars er nú voða lítið að frétta hjá okkur, Jón Heiðar er búinn að vinna í 2 víkur núna og líkar ágætlega bara... það kom honum reyndar dáldið á óvart hvað þeir drekka mikinn bjór í vinnunni hérna en honum líst ekkert sérstaklega illa á það samt! :)
Jæja ég ætla að hafa þetta stutt núna bara og reyna að láta líða styttri tíma á milli í staðin! :)
Bestu kveðjur frá Árósum
Lilja - sem er orðin spennt að fá gesti!! :)
Konudagurinn :)
Konudagurin var haldinn hátíðlegur á Vestergade í dag þrátt fyrir að hann þekkist ekki í danmörku... Ég er satt að segja búin að notfæra mér þetta í allan dag, æi nenniru að gera þetta fyrir mig - það er konudagur! Ég tók reyndar pínu forskot á sæluna í gær og fór í mini-verslunarferð... náði alveg að kaupa mér eitthvað smá svona í tilefni konudagsins! :) Jón Heiðar sá svo um eldamennskuna í kvöld:

Á meðan ég lá uppí sófa og lét fara vel um mig! :)

Svo fékk ég líka desert... súkkulaðiköku og jarðaberjaís! :)

Nammi namm

Ég á besta kall í heimi! :)
Jón Heiðar er kominn með vinnu og hættur að hanga heima alla daga... allavega ekki nema hálfan daginn núna. Full vinna í Danmörku er 37 tímar á viku og drengurinn er að vinna til 15.30 tvo daga í viku og 14.30 hina dagana... það telst varla nema hálfur vinnudagur á Íslandi. En það er líka gott að hafa hann heima ég get látið hann sjá um þvottinn og uppvaskið :) Hann fékk semsagt vinnu við smíðar hjá smíðafyrirtæki hérna í Árósum sem er að byggja kollegie (stúdentaíbúðir) hérna uppfrá einhvern staðar.
Annars er bara búið að vera rólegt hjá okkur síðustu daga. Ég fór reyndar og hitti nokkra íslenska læknanema, sem eru að læra hérna í Árósum, í gær. Jón Heiðar skrapp líka með Helga Frey og Jóni Reyni til Randers að horfa á Helga spila í gær og endaði það með djammi þar :)
Jæja þetta er orðið ágætt... ég stend samt ennþá við regluna! :)
Bið að heilsa á klakann
Kveðja frá Vestergade
Lilja
Gestagangur og þorrablót
Hæhæ
Það er búið að vera einhver blogg leti í mér síðustu daga en það er samt ýmislegt sem hefur drifið á daga okkar hérna... sumt skemmtilegt annað ekki eins skemmtilegt!
Síðasta vika byrjaði alveg hræðilega, ég vaknaði á mánudagsmorguninn eftir bolluátið mikla á sunnudaginn alveg að drepast í maganum! Ég hélt að þar væri annað hvort hægt að kenna bollunum um eða þá að ég væri með svona léttan stresshnút fyrir fyrsta deginum í skólanum! En NEI ég var komin með ÆLUPESTI! Ég mátti samt ekki vera að því að taka mér frí í skólanum - maður byrjar nú ekki á því svona á fyrsta degi.Eftir síðasta tíma dagsins skreið ég samt bara uppí rúm og lá þar það sem eftir var dagsins.. Anna Ragna var á leiðinni til Árósa þennan dag og ætlaði að gista hjá okkur nokkrar nætur.. hún hætti aftur á móti við þegar hún frétti af ælupestinni á heimilinu og fékk gistingu hjá Elínu Maríu í staðin! :) Ég var miklu betri í maganum þegar ég vaknaði á þriðjudagsmorgninum þannig að þetta gerði ekkert til.. ágætt að fasta í einn dag svona inná milli :)
Sara Björk og Sandra Dögg komu líka til Árósa í síðustu viku og var mikið fjör að hitta stúlkurnar allar saman! Sara var að sækja um í skólanum mínum og ég krosslegg bara fingur að hún komist inn í haust! Alltaf gaman að fá fleira skemmtilegt fólk hingað til okkar.
Við gerðum margt skemmtilegt saman alla vikuna eins og t.d. versla og borða (þ.e.a.s. eftir að ég fékk matarlistina aftur) og það klikkaði ekki það var alltaf eftirréttur eftir hverja máltíð!! :)
Við áttum svo von á fleiri gestum á fimmtudaginn en það gekk ekki alveg eftir! Því miður var svo brjálað veður á klakanum að það var ekki flogið þennan dag (og reyndar ekki næstu daga á eftir heldur) þannig að Thelmu og Ívar fengum við ekki í heimsókn þessa helgina!! Þau fá samt annað flug í staðin og koma bara vonandi sem fyrst! Við vorum samt alveg hrikalega fúl þegar við fengum að vita að þau væru ekki að koma þrátt fyrir að vera búin að bíða á flugvellinum í 12 tíma!
Við stúlkurnar reyndum að gera sem best úr þessu öllu saman og við Anna Ragna og Sara kíktum aðeins út á föstudagskvöldið. Ég varð að sýna þeim bæinn og við kíktum aðeins á lítinn sætan bar hérna niðri við síkið sem heitir Herr Bartels... þar fengum við okkur Strawberry Daquiry!! UHMM það er svo gott!! :) Stelpurnar fengu svo að gista í svefnsófanum hjá okkur svo að það væri nú einhver notkun á honum! :)
Við stúlkurnar heima á Vestergade :)
Við á leiðinni heim af Herr Bartels!
Þorrablót Íslendingafélgagsins í Árósum var svo haldið með pompi og prakt um helgina. Sara, Sandra og Anna skelltu sér náttla með okkur og skemmtu sér með eindæmum vel! Edda Björgvins var veislustjóri og Á móti sól spilaði svo eitthvað fram á nótt. Edda var reyndar ekki alveg að meika það.. var bara með einhverja elli smella brandara en það gerði svo sem ekkert til það var samt rosa gaman!
Ég ákvað að láta fylgja með nokkrar myndir frá Þorrablótinu líka:
Sunna Björk og Elín María í brjáluðu stuði... :)
Anna og Sara líka að skemmta sér vel.
Margrét og Sara á dansgólfinu
Jónarnir með í nefinu! 
Helgi Freyr í fjörinu þrátt fyrir að hafa verið eini bílstjórinn á blótinu!
Jæja þetta er að verða ágætt held ég...
Allir sem skoða verða að kommenta... það er nýjasta reglan á síðunni!
Bestu kveðjur frá Árósum
Lilja
Bolla bolla
Hej
Ég ákvað að skella inn nokkrum línum hérna.
Þá er kynningarvikan í skólanum búin að nú tekur alvaran við. Okkur voru settar fyrir nokkrar blaðsíður sem við eigum að lesa fyrir tímana á morgun. Ég er búin að vera að glugga í bækurnar um helgina og gengur svona ágætlega... ég er nú ekki að skilja hvert einasta orð sem ég les... en ég skil nú eitthvað samt!
Það kemur svo í ljós á morgun hvort ég hafi skilið þetta rétt! :)
Síðasta vika var mjög þægileg bara... við vorum á fyrirlestrum frá 9 eða 10 til svona 16 og síðan var gert eitthvað skemmtilegra á kvöldin. Við fórum saman bekkurinn á pubcrawl (pöbbarölt) á miðvikudagskvöldið, maður þarf nottla að kynnast pöbbunum hérna líka. Svo fór ég og hitti hinar íslensku stelpurnar sem eru í læknisfræði hérna í Árósum á fimmtudagskvöldið... þær eru allar komnar alveg agalega langt (eða það finnst mér sem er rétt búin með viku!) ég hlakka allavega til að geta sagt "ég er á 12.semester" (12. og síðustu önninni) :) En það kemur vonandi að því einhvern tímann!
Á föstudaginn var svo fredagsbar eins og verður víst á hverjum föstudegi í vetur (þeir eru svo mikil partýdýr þessir danir). Ég mætti reyndar ekki fyrr en um hálf 7 vegna þess að ég átti að hitta bekkinn minn þar og við fórum svo saman heim til einnar af stelpunum í bekknum og borðuðum pizzu og svo djömmuðu þau eitthvað fram á kvöld... ég aftur á móti GAT EKKI MEIR og fór heim snemma að sofa! Ég var algjörlega búin að fá nóg af öllu þessu djammi hérna.. hehe :) Það er ekkert grín að vera læknisfræði get ég sagt ykkur!
Helgin er svo bara búin að fara í rólegheit.. við fórum reyndar á föstudaginn og keyptum okkur kort í ræktina og erum búin að vera rosa dugleg að mæta föstudag-laugardag-sunnudag. Þetta er dáldið öðruvísi en Þreksport.. dáldið MIKIÐ stærra... ekki það að ég sé að gera lítið úr þreksport sko, þar er alltaf gott að vera. En ræktin mín hérna er á 2 hæðum með svona 20 sinnum fleiri upphitunartæki og dáldið mikið meira af lyftingartækjum líka. Ég er að hugsa um að prófa svona hóptíma einhverja í næstu viku, t.d. spinnig, body pump og body combat! Um að gera að komast á fullt í ræktinni sem fyrst þá líður manni svo vel! :)
Í dag er Fastelavn sem er danskur bolludagur/sprengidagur/öskudagur allt í einum degi! Við skötuhjúin gerðum heiðarlega tilraun til að baka vatnsdeigsbollur í tilefni dagsins. Fyrsta platan var eiginlega meira svona vatnsdeigsklattar þannig að við reyndum að þykkja deigið aðeins... næsta plata var aðeins meira í bolluformi en samt ekkert voða bolluleg... síðasta platan varð svo næstum því eins og bollur eiga að vera og ein bollan var meira segja eins og MAMMA hefði gert hana!! :) Þær smökkuðust samt voðalega vel.. það skiptir nú ekkert öllu máli hvernig þær líta út ef maður getur sett rjóma og súkkulaði á þær! :)
Jón Heiðar ætlar samt að gera aðra tilraun til að baka bollur á morgun (í tilefni þess að þá er bolludagur á Íslandi) þannig að ég fæ vonandi rosa fínar bollur þegar ég kem heim úr skólanum seinni partinn... :)
Svo erum við að fá gesti á morgun, Sara, Sandra og Anna Ragna eru að koma í heimsókn til Árósa og ætla að vera í viku... síðan fáum við fleiri gesti á fimmtudaginn en þá koma Thelma og Ívar til okkar og verða yfir helgina! :) Þannig að það verður nóg að gera næstu vikuna í að lesa og taka á móti gestum! :)
Jón Heiðar er aðeins farinn að leita sér að vinnu. Hann er búin að sækja um á nokkrum stöðum og skrá sig á nokkrum skrifstofum sem sjá um að ráða fólk til vinnu útum allt. Hann fer vonandi bara að fá símtal frá einhverjum á næstu 1-2 vikum :)
Jæja ég held að þetta sé að verða ágætt í bili
ÉG VIL FÁ KOMMENT TAKK!
Kveðja úr Vesturgötu!
Lilja - hlakkar til að fá gesti! :)

