Leikur dagsins

Sól, sól skín á mig :)

16. maí 2008 klukkan 16:46
Góðan daginn gott fólk!
Það er bara sól og blíða alla daga í Árósum núna og ég er alveg að fýla það :)
Það er aftur á móti ekki alveg jafn gaman að eyða öllum sólskinsdögunum niðrí kjallara í skólanum að kryfja en það er búið núna þannig að ég get farið að sóla mig á fullu :)
Jón Heiðar er ennþá í fullri vinnu sem heimavinnandi heimilisfaðir og stendur sig eins og hetja get ég sagt ykkur :) Hann stendur á haus alla daga við að þvo þvott og vaska upp, ásamt því að sjá um að elda matinn og gera hreint í höllinni :) Ég er aftur móti bara prinsessan sem skipa fyrir og segi hvað hann eigi að gera næst :) Nú eru allir farnir að vorkenna greyið drengnum örugglega en honum finnst þetta nú ekki svo slæmt... hann er allavega ekki farinn að sækja um aðra vinnu ennþá :) Hann ætlar bara að fara heim á Krók að vinna 5.júní og ég get því skipað honum fyrir þangað til :)
Það er nóg að gera hjá okkur hérna og allar helgar planaðar fram í júní. Við Elín María erum að fara á Norreso festival í IHÅ á morgun og þá hittir maður vonandi eitthvað af fólkinu sem ég var með þarna í fyrra... verður örugglega bara gaman :) Síðan er EUROVISION um næstu helgi og auðvita er búið að plana brjálað partý að hætti Íslendinga hjá Margréti og Helga á laugardagskvöldinu... það verður án efa bara stuð :)

"Ekki fréttirnar" verða ekki lengri að þessu sinni því nú er maturinn tilbúinn hjá drengum og ég þarf að rífa mig á fætur og setjast við matarborðið... úff ERFITT LÍF!! :)

Kv. Lilja - prinsessa :)

Bloggleti!!

04. maí 2008 klukkan 13:34

Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg að standa mig í blogginu!
En ég ætla að koma með smá punktablogg um það sem á daga okkar hefur drifið undanfarið...

Búin að kryfja hendina... það var alveg ágætt en sú vika einkenndist af höfuðverk vegna mikillar formalínslyktar.

Mamma og pabbi komu um síðustu helgi, við fórum til Köben og tókum á móti þeim og eyddum helginni þar í Tívolí og fleira. Svo fórum við öll saman til Árósa á sunnudaginn og höfðum það gott hérna þangað til þau fóru aftur heim á miðvikudaginn. Þau fengu frábært veður allan tímann nema einn leiðinda rigningardag.. en við létum það nú ekkert á okkur fá.

Nú er ég að fara að kryfja neðri búk næstu 2 vikurnar þannig að það er nóg að gera í skólanum hjá mér þessa dagana.

Jón Heiðar er komin í fulla vinnu sem heimavinnandi heimilisfaðir og sér hann því algerlega um öll þrif og eldamennsku á heimilinu... ég er ekkert að reka á eftir honum að fara að finna sér aðra vinnu :) Hann fer örugglega bara heim að vinna fljótlega ef hann fær leið á heimilisstörfunum.

Sumarið er komið til Árósa og er hitastigið núna í kringum 15-17 stig en á að fara hækkandi í næstu viku og þeir spá sól og amk 20 stiga hita alla næstu viku!! :) Ég er sko alveg að fýla þetta veður :)

Ég held að þetta sé orðið ágætt magn af "ekki fréttum" af okkur skötuhjúunum í bili... ekkert gaman að blogga þegar maður hefur ekkert að segja!

Ég heimta samt mörg komment svo það sé möguleiki á öðru bloggi í þessum mánuði :)

Kv. Lilja - sólskinsbarn :)

Jæja.. ætli það sé kominn tími á mig??

08. apríl 2008 klukkan 16:18

Hæhæ
Fólk er farið að ota því að mér að ég sé ekki að standa mig í blogginu... ætli ég verði ekki að reyna að gera fólki til geðs :)
Það er sko ýmislegt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast. Þá voru Thelma og Ívar að koma og þau eru því miður farin heim aftur. Við fórum reyndar með þeim heim til Íslands og komum öllum á óvart um páskana, það var mjög gaman. Við vorum svo heppin að fá Geddann hennar Ingu Heiðu lánaðan á meðan á Íslandsdvöl stóð og eins og fram kom í kommentum síðustu færslu fékk hún páskaegg að launum og Geddi fékk bón :) Það grunaði engann að við værum á leiðinni heim þannig að það var mjög gaman að sjá svipinn á öllum þegar við mættum á Krókinn! Allir rosa hissa :)
En það eru nú reyndar alveg að vera komnar 2 vikur síðan við komum aftur út og það var bara tekið vel á móti okkur með sól og sumarblíðu hérna í Árósum. Ég held hreinlega að sumarið sé að koma hérna - og ég er sko alveg að fýla það!!
En fréttir af okkur eru nú ekkert rosa margar, það er örugglega þess vegna sem ég er ekki búin að vera dugleg að blogga - ég veit bara ekkert hvað ég á að segja ykkur.
Skólinn gengur bara ágætlega. Við erum að fara að byrja að kryfja í næstu viku og ég er bara nokkuð spennt fyrir því... það er reyndar dáldið mikið sem ég þarf að læra áður en við byrjum á því þannig að ég þarf að vera dugleg að sitja yfir bókunum þangað til... ég er meira að segja að fara að sleppa Backstreet Boys tónleikum um helgina til að hafa örugglega nógan tíma til að læra fyrir þetta og þá er sko mikið sagt! :) En Margrét skemmtir sér bara tvöfalt fyrir mig í staðin!
Jón Heiðar er alltaf að vinna bara.. þeir þykjast reyndar ætla að fara að klára þetta verkefni sem hann var ráðinn í þannig að það fer líklega að styttast í að hann þurfi að fara að finna sér aðra vinnu. En það gengur örugglega bara jafn vel og síðast þannig að við höfum engar áhyggjur!
Ég veit ekkert hvað ég á að segja ykkur fleira... nema að þið verðið að vera dugleg að kommenta svo að ég nenni að halda áfram að blogga... mig vantar smá hvatningu :)
Kveðja úr blíðunni í Árósum
Lilja

Á milli gesta :)

13. mars 2008 klukkan 21:34
Hæhæ
Maður er ekki búinn að vera alveg nógu duglegur að blogga í mars... enda búið að vera brjálað að gera :)
Aníta kom í heimsókn í síðustu viku og stoppaði í 6 daga, það var æði að fá hana í heimsókn við gerðum margt skemmtilegt saman! Við kíktum t.d. í "nokkrar" búðir og hún náði að versla sér soldinn slatta í tösku :) Hún kom reyndar með troðfulla tösku af varningi frá Íslandi þannig að hún þurfti nú að versla dáldið til að ná að fylla töskuna aftur fyrir heimferð :) Við fengum m.a. fullt af páskaeggjum og fleira góðgæti frá fjölskyldu og vinum á Íslandinu þannig að við eigum eftir að hafa það alltof gott hérna um páskana :) Takk kærlega fyrir okkur Aníta, Matthildur, Thelma, mamma, pabbi, tengdó og allir sem laumuðu einhverju í töskuna!! :) Við vorum ekkert sérstaklega dugleg að taka myndir á meðan Aníta var hérna, hún tók samt einhverjar myndir sem við verðum að fá hjá henni bara. Við verðum að reyna að vera duglegari þegar næstu gestir koma...
...en það er eftir aðeins 2 daga!! Thelma og Ívar koma á laugardaginn og ætla að stoppa í 6 daga eða fram á skírdag. "Allt er þegar þrennt er" sagði einhver og ég hef alla trú á því að þau komist alla leið í þetta skiptið :) Ég er allavega búin að plana rosa skemmtun allan tímann og soldið að búðarferðum fyrir okkur Thelmu líka. Verst hvað helv... danska krónan er orðin há þannig að það er alltaf að hækka verðið í búðunum hérna, en maður lætur það nú ekki á sig fá. Ég er allavega búin að hlakka til að fá þau síðan þau pöntuðu sér flugið í fyrsta skiptið (fyrir 2 mánuðum síðan) og spennan er ekkert að minnka neitt sko :)
Það er búið að vera dáldið mikið að gera í lærdómnum hjá mér uppá síðkastið, ég er búin að vera að reyna að lesa fram í tímann svo ég þurfi ekki að liggja yfir bókunum á meðan gestirnir verða hjá okkur. Ég þarf reyndar ekki að mæta neitt voðalega mikið í skólann í næstu viku, bara í 4 tíma á mánudaginn og 2 tíma á þriðjudaginn svo er ég komin í páskafrí. Ég fæ reyndar ekkert brjálað páskafrí -  þetta er ekkert í líkingu við það sem maður fékk í fjölbraut sko.
Það er lítið að frétta af okkur - nema það er að koma vor í Árósum :) Sumarið verður komið hérna áður en við vitum af!

Ég ætla að óska afmælisbörnum dagsins til hamingju með daginn mamma mín er fertug í annað sinn og Kristín María 23ja :)

En jæja ég ætla að fara að hætta þessu - læt vita af mér þegar skötuhjúin eru farin
Bestu kveðjur frá Árósum
Lilja

P.s. ég ætla að endurlífga regluna - allir verða að kommenta og segja mér hvað þeir ætla að gera í páskafríinu :)

Úff hvað tíminn er fljótur að líða!

29. febrúar 2008 klukkan 19:14
Sæl veriði
Síðasti dagur febrúarmánaðar er runninn upp... tíminn er hrikalega fljótur að líða hérna í Danaveldinu. Ég efast reyndar ekkert um að hann sé það líka á Íslandinu góða. Við skötuhjúin erum sem sagt búin að búa hérna í 6 vikur í dag og mér finnst eiginlega eins að við höfum komið í síðustu viku bara! Ég er samt ekkert að væla yfir þessu neitt... þetta þýðir bara að það er styttra þangað til sumarfríið kemur og við getum farið heim á klakann og hitt alla aftur! :)
Mars hefur alltaf verið uppáhalds mánuðurinn minn.. fyrir utan desember kannski. Mars verður sko ekkert síðri þetta árið heldur en hin því það er margt skemmtilegt að fara að gerast í næsta mánuði. Við fáum t.d. 2 heimsóknir, Aníta kemur 5. mars og stoppar í 6 daga og svo koma Thelma og Ívar 15. mars og verða jafn lengi! Þegar þau fara eru páskarnir rétt handan við hornið með páskaeggjum og huggulegheitum og síðan kemur afmælið mitt strax eftir páska!! Ég efast ekkert um að mars verði rosalega fljótur að líða þetta árið!! Annars eiga 2 sætar frænkur afmæli á morgun, 1.mars... til hamingju með daginn á morgun Inga Heiða og Rut :)
Annars er nú voða lítið að frétta hjá okkur, Jón Heiðar er búinn að vinna í 2 víkur núna og líkar ágætlega bara... það kom honum reyndar dáldið á óvart hvað þeir drekka mikinn bjór í vinnunni hérna en honum líst ekkert sérstaklega illa á það samt! :)
Jæja ég ætla að hafa þetta stutt núna bara og reyna að láta líða styttri tíma á milli í staðin! :)

Bestu kveðjur frá Árósum
Lilja - sem er orðin spennt að fá gesti!! :)

Konudagurinn :)

24. febrúar 2008 klukkan 21:00
Sæl veriði

Konudagurin var haldinn hátíðlegur á Vestergade í dag þrátt fyrir að hann þekkist ekki í danmörku... Ég er satt að segja búin að notfæra mér þetta í allan dag, æi nenniru að gera þetta fyrir mig - það er konudagur! Ég tók reyndar pínu forskot á sæluna í gær og fór í mini-verslunarferð... náði alveg að kaupa mér eitthvað smá svona í tilefni konudagsins! :) Jón Heiðar sá svo um eldamennskuna í kvöld:




Á meðan ég lá uppí sófa og lét fara vel um mig! :)




Svo fékk ég líka desert... súkkulaðiköku og jarðaberjaís! :)




Nammi namm



Ég á besta kall í heimi! :)

Jón Heiðar er kominn með vinnu og hættur að hanga heima alla daga... allavega ekki nema hálfan daginn núna. Full vinna í Danmörku er 37 tímar á viku og drengurinn er að vinna til 15.30 tvo daga í viku og 14.30 hina dagana... það telst varla nema hálfur vinnudagur á Íslandi. En það er líka gott að hafa hann heima ég get látið hann sjá um þvottinn og uppvaskið :) Hann fékk semsagt vinnu við smíðar hjá smíðafyrirtæki hérna í Árósum sem er að byggja kollegie (stúdentaíbúðir) hérna uppfrá einhvern staðar.
Annars er bara búið að vera rólegt hjá okkur síðustu daga. Ég fór reyndar og hitti nokkra íslenska læknanema, sem eru að læra hérna í Árósum, í gær. Jón Heiðar skrapp líka með Helga Frey og Jóni Reyni til Randers að horfa á Helga spila í gær og endaði það með djammi þar :)

Jæja þetta er orðið ágætt... ég stend samt ennþá við regluna! :)
Bið að heilsa á klakann
Kveðja frá Vestergade
Lilja

Gestagangur og þorrablót

13. febrúar 2008 klukkan 20:45

Hæhæ
Það er búið að vera einhver blogg leti í mér síðustu daga en það er samt ýmislegt sem hefur drifið á daga okkar hérna... sumt skemmtilegt annað ekki eins skemmtilegt!

Síðasta vika byrjaði alveg hræðilega, ég vaknaði á mánudagsmorguninn eftir bolluátið mikla á sunnudaginn alveg að drepast í maganum! Ég hélt að þar væri annað hvort hægt að kenna bollunum um eða þá að ég væri með svona léttan stresshnút fyrir fyrsta deginum í skólanum! En NEI ég var komin með ÆLUPESTI! Ég mátti samt ekki vera að því að taka mér frí í skólanum - maður byrjar nú ekki á því svona á fyrsta degi.Eftir síðasta tíma dagsins skreið ég samt bara uppí rúm og lá þar það sem eftir var dagsins.. Anna Ragna var á leiðinni til Árósa þennan dag og ætlaði að gista hjá okkur nokkrar nætur.. hún hætti aftur á móti við þegar hún frétti af ælupestinni á heimilinu og fékk gistingu hjá Elínu Maríu í staðin! :) Ég var miklu betri í maganum þegar ég vaknaði á þriðjudagsmorgninum þannig að þetta gerði ekkert til.. ágætt að fasta í einn dag svona inná milli :)

Sara Björk og Sandra Dögg komu líka til Árósa í síðustu viku og var mikið fjör að hitta stúlkurnar allar saman! Sara var að sækja um í skólanum mínum og ég krosslegg bara fingur að hún komist inn í haust! Alltaf gaman að fá fleira skemmtilegt fólk hingað til okkar.
Við gerðum margt skemmtilegt saman alla vikuna eins og t.d. versla og borða (þ.e.a.s. eftir að ég fékk matarlistina aftur) og það klikkaði ekki það var alltaf eftirréttur eftir hverja máltíð!! :)

Við áttum svo von á fleiri gestum á fimmtudaginn en það gekk ekki alveg eftir! Því miður var svo brjálað veður á klakanum að það var ekki flogið þennan dag (og reyndar ekki næstu daga á eftir heldur) þannig að Thelmu og Ívar fengum við ekki í heimsókn þessa helgina!! Þau fá samt annað flug í staðin og koma bara vonandi sem fyrst! Við vorum samt alveg hrikalega fúl þegar við fengum að vita að þau væru ekki að koma þrátt fyrir að vera búin að bíða á flugvellinum í 12 tíma!

Við stúlkurnar reyndum að gera sem best úr þessu öllu saman og við Anna Ragna og Sara kíktum aðeins út á föstudagskvöldið. Ég varð að sýna þeim bæinn og við kíktum aðeins á lítinn sætan bar hérna niðri við síkið sem heitir Herr Bartels... þar fengum við okkur Strawberry Daquiry!! UHMM það er svo gott!! :) Stelpurnar fengu svo að gista í svefnsófanum hjá okkur svo að það væri nú einhver notkun á honum! :)


Við stúlkurnar heima á Vestergade :)



Við á leiðinni heim af Herr Bartels!

Þorrablót Íslendingafélgagsins í Árósum var svo haldið með pompi og prakt um helgina. Sara, Sandra og Anna skelltu sér náttla með okkur og skemmtu sér með eindæmum vel!  Edda Björgvins var veislustjóri og Á móti sól spilaði svo eitthvað fram á nótt. Edda var reyndar ekki alveg að meika það.. var bara með einhverja elli smella brandara en það gerði svo sem ekkert til það var samt rosa gaman!
Ég ákvað að láta fylgja með nokkrar myndir frá Þorrablótinu líka:


Sunna Björk og Elín María í brjáluðu stuði... :)





Anna og Sara líka að skemmta sér vel.



Margrét og Sara á dansgólfinu



Jónarnir með í nefinu!




Helgi Freyr í fjörinu þrátt fyrir að hafa verið eini bílstjórinn á blótinu!

Jæja þetta er að verða ágætt held ég...
Allir sem skoða verða að kommenta... það er nýjasta reglan á síðunni!
Bestu kveðjur frá Árósum
Lilja

Bolla bolla

03. febrúar 2008 klukkan 20:40

Hej
Ég ákvað að skella inn nokkrum línum hérna.
Þá er kynningarvikan í skólanum búin að nú tekur alvaran við. Okkur voru settar fyrir nokkrar blaðsíður sem við eigum að lesa fyrir tímana á morgun. Ég er búin að vera að glugga í bækurnar um helgina og gengur svona ágætlega... ég er nú ekki að skilja hvert einasta orð sem ég les... en ég skil nú eitthvað samt!
Það kemur svo í ljós á morgun hvort ég hafi skilið þetta rétt! :)
Síðasta vika var mjög þægileg bara... við vorum á fyrirlestrum frá 9 eða 10 til svona 16 og síðan var gert eitthvað skemmtilegra á kvöldin. Við fórum saman bekkurinn á pubcrawl (pöbbarölt) á miðvikudagskvöldið, maður þarf nottla að kynnast pöbbunum hérna líka. Svo fór ég og hitti hinar íslensku stelpurnar sem eru í læknisfræði hérna í Árósum á fimmtudagskvöldið... þær eru allar komnar alveg agalega langt (eða það finnst mér sem er rétt búin með viku!) ég hlakka allavega til að geta sagt "ég er á 12.semester" (12. og síðustu önninni) :) En það kemur vonandi að því einhvern tímann!
Á föstudaginn var svo fredagsbar eins og verður víst á hverjum föstudegi í vetur (þeir eru svo mikil partýdýr þessir danir). Ég mætti reyndar ekki fyrr en um hálf 7 vegna þess að ég átti að hitta bekkinn minn þar og við fórum svo saman heim til einnar af stelpunum í bekknum og borðuðum pizzu og svo djömmuðu þau eitthvað fram á kvöld... ég aftur á móti GAT EKKI MEIR og fór heim snemma að sofa! Ég var algjörlega búin að fá nóg af öllu þessu djammi hérna.. hehe :) Það er ekkert grín að vera læknisfræði get ég sagt ykkur!
Helgin er svo bara búin að fara í rólegheit.. við fórum reyndar á föstudaginn og keyptum okkur kort í ræktina og erum búin að vera rosa dugleg að mæta föstudag-laugardag-sunnudag. Þetta er dáldið öðruvísi en Þreksport.. dáldið MIKIÐ stærra... ekki það að ég sé að gera lítið úr þreksport sko, þar er alltaf gott að vera. En ræktin mín hérna er á 2 hæðum með svona 20 sinnum fleiri upphitunartæki og dáldið mikið meira af lyftingartækjum líka. Ég er að hugsa um að prófa svona hóptíma einhverja í næstu viku, t.d. spinnig, body pump og body combat! Um að gera að komast á fullt í ræktinni sem fyrst þá líður manni svo vel! :)
Í dag er Fastelavn sem er danskur bolludagur/sprengidagur/öskudagur allt í einum degi! Við skötuhjúin gerðum heiðarlega tilraun til að baka vatnsdeigsbollur í tilefni dagsins. Fyrsta platan var eiginlega meira svona vatnsdeigsklattar þannig að við reyndum að þykkja deigið aðeins... næsta plata var aðeins meira í bolluformi en samt ekkert voða bolluleg... síðasta platan varð svo næstum því eins og bollur eiga að vera og ein bollan var meira segja eins og MAMMA hefði gert hana!! :) Þær smökkuðust samt voðalega vel.. það skiptir nú ekkert öllu máli hvernig þær líta út ef maður getur sett rjóma og súkkulaði á þær! :)
Jón Heiðar ætlar samt að gera aðra tilraun til að baka bollur á morgun (í tilefni þess að þá er bolludagur á Íslandi) þannig að ég fæ vonandi rosa fínar bollur þegar ég kem heim úr skólanum seinni partinn... :)
Svo erum við að fá gesti á morgun, Sara, Sandra og Anna Ragna eru að koma í heimsókn til Árósa og ætla að vera í viku... síðan fáum við fleiri gesti á fimmtudaginn en þá koma Thelma og Ívar til okkar og verða yfir helgina! :) Þannig að það verður nóg að gera næstu vikuna í að lesa og taka á móti gestum! :)
Jón Heiðar er aðeins farinn að leita sér að vinnu. Hann er búin að sækja um á nokkrum stöðum og skrá sig á nokkrum skrifstofum sem sjá um að ráða fólk til vinnu útum allt. Hann fer vonandi bara að fá símtal frá einhverjum á næstu 1-2 vikum :)

Jæja ég held að þetta sé að verða ágætt í bili
ÉG VIL FÁ KOMMENT TAKK!
Kveðja úr Vesturgötu!
Lilja - hlakkar til að fá gesti! :)

Århus city!

19. janúar 2008 klukkan 16:43
Góðan daginn gott fólk.
Þá er maður mættur til Árósa og búinn að taka uppúr töskunum og svona.
Við vorum búin að fara eina ferð í IKEA í desember og kaupa rúm, svefnsófa, kommóðu, hillu og eldhús borð og stóla þannig að það var mjög fínt að koma núna og eiga ekki alla flutningana eftir!
Við fórum reyndar í bæinn í dag og keyptum okkur sjónvarp - svo við hefðum eitthvað að gera þangað til dótið okkar kemur allt á þriðjudag-miðvikudag. Það mætti halda að fólk hafi aldrei séð neinn halda á 32" flatskjá í gegnum bæinn... það var allavega horft soldið mikið á okkur þegar við löbbuðum með sjónvarpið heim... :)
Svo ætlum við að taka okkur bílaleigubíl á mánudaginn og klára að versla inn í íbúðina, eigum eftir að kaupa stofuborð og glerskáp allavega... svo bara eitthvað svona smotterí.
Ég byrja svo í skólanum á fimmtudaginn og fer í hyttetur föstudag-sunnudags. Jón Heiðar ætlar að nota tímann á meðan ég verð í burtu og mála alla íbúðina og setja upp ljós og svona.. það er ekkert voða mikið af loftljósum hérna - við þurfum að notast við lampa þangað til búið er að mála.
Annars er þetta aðeins að verða heimilislegt hérna hjá okkur... það vantar reyndar ennþá allt í eldhúsið þannig að við verðum fastagestir á veitingastöðum bæjarins þangað til við fáum dótið okkar í næstu viku...
Jæja ég hugsa að þetta sé orðið fínt í bili bara...
Kveðja frá Århus
Lilja

3 dagar í útflutning!

15. janúar 2008 klukkan 23:34
Sæl veriði aftur...
Nú á að reyna að taka pennann upp aftur og reyna að vera dugleg að blogga um það sem á daga okkar drífur í Danmörkunni!
Það er allt að smella... búslóðin er á leiðinni til Árósa og restin að verða komin ofan í töskurnar! Við fljúgum svo út á föstudagsmorguninn og skólinn byrjar í næstu viku.
Ég byrja á því að skella mér í smá ferðalag með bekknum mínum... ferðinni er heitið eitthvað lengst útí sveit held ég og ætlunin er að reyna að hrissta hópinn saman.

Ég skrifa meira þegar ég er komin á leiðarenda og búin að athuga hvort internetið virkar á heimilinu - ég er ekkert að gera mér neitt of miklar væntingar um að það verði allt í topp standi.

Veriði nú dugleg að kommenta til að halda mér við efnið.

Kv. Lilja

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lilja
  • Staður: Árósar, Danmörku
  • Heimilisfang: Vestergade 31c, 2. lej. 11
  • Atvinna: Ég er í læknisfræði í Árósaháskóla
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð